Krónan veiktist um 1,1% í dag skv. upplýsingum frá Landsbankanum. Gengisvísitalan stóð í 113,50 stigum við upphaf dags en hún stóð í 114,60 þegar viðskiptum lauk í dag. Veltan á millibankamarkaði nam tæpum 33 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 61,85 kr., pundið er 125,17 kr. og evran er 84,62 kr.