DV Útgáfufélag og Birtíngur undir sameiginlega rekstrarstjórn

Tekin hefur verið ákvörðun um að DV Útgáfufélag og Birtingur útgáfufélag verði sett undir sameiginlega rekstrarstjórn. Fram kemur í tilkynningu, að ekki sé um sameiningu félaganna að ræða heldur um rekstrarlega hagræðingu. Elín Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtings, verður framkvæmdastjóri beggja félaga.

Í tilkynningunni segir, að markaðsmál, dreifing, sala, bókhald og fleiri þættir verði settir undir sameiginlega stjórn en um frekari sameiningu sé ekki að ræða.

Birtingur útgáfufélag gefur út tímaritin Vikuna, Séð og Heyrt, Mannlíf, Ísafold, Nýtt Líf, Söguna Alla, Gestgjafann,, Hús og Híbýli og Golfblaðið. DV Útgáfufélag gefur út DV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK