Samkvæmt yfirliti fjármálaráðuneytisins var 2381 einstaklingur eingöngu með fjármagnstekjur á síðasta ári. 90% þeirra voru með minna en 50 þúsund krónur, aðallega ungt fólk sem ekki er á vinnumarkaði. Þá voru 150 hjón eingöngu með fjármagnstekjur á síðasta ári og aðeins 51 greiddi einhvern fjármagnstekjuskatt.
Fjármálaráðuneytið segir, að eftir að niðurstöður skattaálagningar á einstaklinga árið 2007 lágu fyrir um síðustu mánaðamót hafi í umfjöllun fjölmiðla um fjármagnstekjuskatt margoft verið fullyrt að ríkið sitji eitt að skattgreiðslum á þriðja þúsund manns sem séu ekki með aðrar tekjur en fjármagnstekjur og greiði því einungis fjármagnstekjuskatt sem renni til ríkisins, en greiði ekkert til sveitarfélaga, þótt þeir nýti sér þjónustu sveitarfélaganna.
Fjármálaráðuneytið hafi af þessu tilefni látið greina fjármagnstekjur þeirra sem ekki voru með aðrar tekjur en fjármagnstekjur á árinu 2006. Komi þá eftirfarandi í ljós: