Hlutabréf lækkuðu mikið í verði í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,47% og er 7993, hefur lækkað um rúm 1000 stig eða 12% á undanförnum mánuði. Bréf Exista lækkuðu mest í dag, eða um 6,42%, bréf Forøya Banka lækkuðu um 5% og bréf Icelandair um 4,17%. Þá lækkuðu bréf bankanna allra um 3-3,5%. Engin bréf hækkuðu í verði.