OMX hlutabréfavísitölurnar á Norðurlöndunum hafa allar hækkað í morgun um 1,4-1,5% að jafnaði eftir mikla lækkun í lok síðustu viku. Þá hækkuðu hlutabréfavísitölur í Lundúnum, París og Frankfurt einnig um rúmlega 1% um leið og viðskipti hófust í kauphöllunum í þessum borgum. Hlutabréf hækkuðu í verði í Asíu í morgun.