Miklar sveiflur hafa verið á gengi krónunnar í dag, en í lok viðskipta hafði hún veikst um 0,55% samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Vísitalan var 120,78 við opnun markaðarins, en við lokun stóð hún í 121,45. Velta nam 39,5 milljörðum. Gengi dollarans er 66,04 krónur, pundsins 132,06 og evrunnar 89,63.