Gengi hlutabréfa hefur hækkað í viðskiptum í Kauphöll Íslands í dag. Hefur úrvalsvísitalan hækkað um 2,45% og nálgast nú 8000 stig að nýju. Gengi bréfa Exista hefur m.a. hækkað um 5,38%. Þá hefur gengi krónunnar hækkað í viðskiptum á millibankamarkaði. Hefur gengisvísitalan lækkað um 0,87% og er 123,75 stig.