Órói á fjármálamörkuðum undanfarnar vikur virðist ekki slá á bjartsýni íslenskra neytenda. Telja þeir núverandi ástand í efnahags- og atvinnumálum afar gott, en eru nokkru svartsýnni á horfur að sex mánuðum liðnum. Þetta er meðal þess sem lesa má úr Væntingavísitölu Gallup sem birt var í morgun, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.
Vísitalan fyrir ágúst mælist 126,3 stig og hækkar milli mánaða um hálft annað stig. Vísitala fyrir mat á núverandi ástandi mælist 172,4 stig, og hefur aðeins einu sinni verið hærri. Vísitala fyrir væntingar til sex mánaða er hins vegar mun lægri og mælist 95,6 stig, en vísitölugildi undir 100 þýðir að fleiri svara neikvætt en jákvætt. Munur á mati á núverandi ástandi og væntingum til sex mánaða hefur aukist hratt undanfarna mánuði.
Sterk fylgni hefur verið undanfarin misseri milli þróunar Væntingavísitölu og gengis krónu. Til að mynda sló mjög á væntingar neytenda í kjölfar gengisfalls krónu á vormánuðum í fyrra. Samfara hækkandi gengi tóku neytendur svo gleði sína á ný með haustinu á síðasta ári, að því er segir í Morgunkorni.
„Hins vegar hefur þróun síðustu mánaða gengið þvert gegn þessu sambandi. Þannig lækkað Væntingavísitalan talsvert í júlí samfara styrkingu krónunnar, en á hinn bóginn virðist gengisfall krónu, sem var hvað hraðast á þeim tíma sem mælingar Gallup stóðu yfir, ekki hafa haft mikil áhrif á svör neytenda í ágúst.
Sterkt samband er einnig milli Væntingavísitölu og einkaneyslu, og styður þróun vísitölunnar við þá skoðun okkar að einkaneysla hafi verið lífleg á vor- og sumarmánuðum. Órói á fjármálamörkuðum kann þó enn að eiga eftir að segja til sín í minnkandi bjartsýni neytenda, og einnig kunna minnkandi kaupmáttur og þrengri skilyrði til lánsfjármögnunar að segja til sín og draga úr væntingum almennings þegar á haustið líður, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.