Stjórn Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka ákvað á fundi í dag að hlutafé bankans skuli skráð í evrum í stað íslenskra króna. Breytingin tekur gildi þann 20. september nk.
Félagið segir, að umbreytingin raski ekki eignarhlutföllum í félaginu og hafi sem slík ekki bein áhrif á verðmæti hlutafjáreignar hvers hluthafa um sig.