Haraldur Johannessen hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins við hlið Jónasar Haraldssonar ritstjóra. Haraldur er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem sérfræðingur í Greiningardeild Landsbanka Íslands frá árinu 2006.
Haraldur var aðstoðarmaður umhverfisráðherra á árunum 2004 til 2006. Haraldur var blaðamaður á viðskiptablaði Morgunblaðsins á árunum 2000 til 2004.