Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, segir í viðtali við Viðskiptablaðið að það verði sífellt augljósara að íslenska krónan henti bankanum ekki lengur og ekki heldur íslensku atvinnulífi. Segist Sigurður, gera ráð fyrir að að Kaupþing muni innan tíðar skrá hlutafé sitt í evrum eins og Straumur-Burðarás hefur gert og gera upp í þeim gjaldmiðli.