Glitnir og Uppspretta eignarhaldsfélag, sem er í eigu Fons hf., hafa gert með sér samkomulag um að Glitnir annist sölu og sölutryggi Skeljung hf. Er samkomulagið gert með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, sem gerð verður á næstu vikum.
Í framhaldinu ráðgerir Glitnir að hefja viðræður við áhugasama fjárfesta og segist í tilkynningu muni greina nánar frá niðurstöðum þeirra um leið og þær liggja fyrir.