Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með óvænt slit meirihlutasamstarfs Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Fram kemur, að á fundi sínum í dag hafi stjórn Varðar lýst yfir fullu trausti og stuðningi við borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins undir stjórn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.
Stjórnin átti m.a. fund með borgarstjórnarflokknum.