Samdráttur í afla íslenskra skipa

mbl.is

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði var 33,7% minni en í september 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn dregist saman um 5,7% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.Aflinn nam alls 44.865 tonnum í september 2007 samanborið við 87.200 tonn í september 2006.

Botnfiskafli dróst saman um 8.300 tonn frá septembermánuði 2006 og nam tæpum 27.500 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæplega 6.000 tonn, karfaaflinn um rúm 1.600 tonn og ufsaaflinn um 1.500 tonn. Ýsuafli stendur hins vegar í stað, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

Flatfiskaflinn dróst saman um 900 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 16.000 tonnum sem að stærstum hluta var síld. Samdráttur í uppsjávarafla nemur rúmum 33.000 tonnum frá septembermánuði 2006 þegar 49.000 tonn af síld bárust á land. Skel- og krabbadýraafli var 350 tonn samanborið við 250 tonna afla í september 2006.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK