Icebank hefur keypt allt hlutafé í Behrens fyrirtækjaráðgjöf og verður starfsemi félagsins sameinuð starfsemi bankans. Kaupverð og aðrir skilmálar eru trúnaðarmál. Í tilkynningu kemur fram að stofnendur og stærstu eigendur Behrens, Aðalsteinn Jóhannsson og Sigurður Smári Gylfason, muni koma til starfa hjá fyrirtækjaráðgjöf Icebank.