Krónan veiktist um 1,16% í dag, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Í upphafi viðskipta var gengisvísitalan 114,90, en í lok dags var hún 116,25. Velta á millibankamarkaði nam 46,1 milljarði króna. Gengi dollarans er 61,33 krónur, pundsins 124,35 og evrunnar 86,68.