Hagnaður Vinnslustöðvarinnar eykst verulega milli ára

Vinnslustöðin Vestmannaeyjum
Vinnslustöðin Vestmannaeyjum mbl.is/ÞÖK

Hagnaður Vinnslustöðvarinnar nam 1.080 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins. Er það mikil breyting frá í fyrra þegar hagnaður fyrstu níu mánuði ársins nam 63 milljónum króna. Heildartekjur félagsins voru 4.556 milljónir króna, örlitlu minna en á sama tímabili í fyrra. Tekjur fiskvinnslu jukust um 7,6% á meðan tekjur útgerðar jukust um tæplega 9,0%. Rekstrargjöld hækkuðu um liðlega 12,4%.

Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 1.187 milljónum króna og jókst um 3,5% frá fyrra ári. Framlegðarhlutfall hækkaði úr 25,6% í fyrra í 26,0% í ár, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar OMX á Íslandi.

Tilkynning Vinnslustöðvarinnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK