Ætla MÁ að verðmæti skráðra eigna FL Group hafi lækkað um í kringum 20 milljarða króna það sem af er fjórða ársfjórðungi en ekki um 25 milljarða eins og sagði í frétt á vef Berlingske Tidende og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Þetta segir Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, og bendir á að Berlingske Tidende hafi greinilega farið villt vegar í skrifum sínum um tap af „íslensku tryggingafélagi“ en þar mun hafa verið átt við Tryggingamiðstöðina. Halldór minnir einnig á að þegar rætt sé um rýrnun markaðsvirðis skráðra eigna í eigu FL Group sé ekki tekið tillit til hugsanlegra varna sem félagið hafi keypt.