Fasteignafélagið Landmark í Búlgaríu hefur verið selt stjórnendum félagsins á 210 milljónir evra en félagið hefur verið í sölumeðferð hjá Credit Swiss Securities Europe undanfarna mánuði.
Landmark var aðallega í eigu Eignarhaldsfélagsins Kelda og Altima Partners sjóðsins í Bretlandi og áttu hvor þeirra um 42% í Landmark. Keldur eru að 67% hluta í eigu Samson Properties og 33% hluta í eigu sjóða í vörslu Landsbankans í Luxemborg.