Baugur staðfestir orðróm

Baugur
Baugur

Baugur Group sendi í dag tilkynningu til kauphallarinnar í Lundúnum þar sem félagið staðfestir þann orðróm að það sé að kanna möguleika á að taka yfir Moss Bros Group með hliðsjón af óbeinum eignarhlut sínum í félaginu. Baugur á í félagi við FL Group og Kevin Stanford um 28,5% hlut í Moss Bros.

 Hinsvegar er tekið fram að þessi tilkynning sé þó á engan hátt yfirlýsing um einlægan ásetning félagsins til þess að gera tilboð í allt hlutafé félagsins og óvíst að nokkurt tilboð verði gert.

Í Hálf fimm fréttum Kaupþings kemur fram að Moss Bros Group á og rekur um 150 búðir vítt og breitt um Bretland sem selja einkum fatnað undir vörumerkjunum Hugo Boss og Canali. Rekstur félagsins hefur ekki gengið sem skyldi á þessu ári og nú síðast þann 5. desember sendi félagið frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kom að félagið ætti ekki von á því að ná þeirri afkomu sem markaðsaðilar væru almennt að spá fyrir félagið, samkvæmt Hálf fimm fréttum Kaupþings.

Sala félagsins á seinni hluta ársins fram til 8. desember hefur verið 1,5% minni en á sama tíma í fyrra. Í framhaldi af þessari afkomuviðvörun í síðustu viku féllu bréf félagsins í kauphöllinni í London um 13% eða niður í 33 pens á hlut.


Í dag hefur gengi félagsins hækkað um 22,15% eða úr 37,25 pensum á hlut upp í 45,5 pens á hlut og er markaðsvirði félagsins við lokun markaðar um 42,5 milljónir punda eða (5,4 milljarðar króna). Gengi bréfa félagsins hefur lækkað mikið það sem af er ári en hæst fór gengið í 77,5 pens á hlut (í byrjun árs) en fór lægst í 33 pens í síðustu viku í kjölfar afkomuviðvörunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK