Afli erlendra ríkja við Ísland minnkaði úr 114 þúsund tonnum árið 2005 í rúmlega 54 þúsund tonn árið 2006. Uppistaða aflans var sem fyrr loðna. Færeyingar veiddu mest erlendra þjóða hér við land 2006 en Norðmenn árið 2005.
Heimsaflinn var 93 milljónir tonna árið 2005 og minnkaði um 1,1 milljón frá árinu 2004. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2005 en Íslendingar voru í 14. sæti heimslistans, í öðru sæti fiskveiðiþjóða á Norðaustur-Atlantshafi og í 8. sæti veiðiþjóða á Norðvestur-Atlantshafi, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri skýrslu Hagstofu Íslands.