Jón Karl Ólafsson er að láta af störfum sem forstjóri Icelandair. Orðrómur er um að Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, taki við. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Samkvæmt heimildum Stöðvar tvö ákváðu helstu eigendur félagsins í gær að skipta um forstjóra og víkja Jóni Karli Ólafssyni úr starfi. Hvorki hefur náðst í Jón Karl í morgun né Gunnlaug Sigmundsson, stjórnarformann Icelandair, samkvæmt frétt Stöðvar 2.