Hlutabréf lækkuðu í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,32% og er 6315 stig. Er vísitalan komin undir gildið í upphafi ársins en þá var hún 6333 stig. Bréf Föroya Banka hækkuðu um 1,12% og bréf 365 um 0,51%. Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 5,83% og bréf Exista um 5,12%.