Mikil lækkun á hlutabréfaverði

Hlutabréf lækkuðu umtalsvert í verði í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,75% og er 5720 stig en um tíma var lækkunin rúmlega 4,4%. Gengi bréfa Exista lækkaði mest, um 6,03%, bréf Bakkavarar lækkuðu um 5,94% og Kaupþings um 4,39%.

Bréf þriggja félaga hækkuðu: 365 um 0,5%, Eimskips um 0,29% og bréf Alfesca um 0,14%. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK