Gnúpur fjárfestingafélag hefur náð samkomulagi við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins sem felur í sér að stór hluti eigna hefur verið seldur, dregið hefur verið úr skuldsetningu og rekstur dreginn saman.
Fram kemur í tilkynningu frá félaginu, að samhliða hafi náðst samkomulag um endurfjármögnun eftirstandandi skulda félagsins hjá viðskiptabönkum og samið um aðrar skuldir. Aðgerðirnar hafi tryggt félaginu fjárhagslegan sveigjanleika til að mæta erfiðum markaðsaðstæðum áfram.