FL Group hefur minnkað hlut sinn í þýska bankanum Commerzbank úr 4,3% í lok þriðja ársfjórðungs síðasta árs í 2,1% nú. Heildargengistap vegna lækkunar bréfa Commerzbank á árinu 2008 nemur um 2,6 milljörðum króna að teknu tilliti til markaðsvarna félagsins.
FL Group segir að í ljósi lækkunar hlutabréfa í Commerzbank undanfarna daga hafi félagið ákveðið að upplýsa um eignarhlut sinn í bankanum. Um áramót var eignarhluturinn um 2,9%.
Í tilkynningu segir, að sala hlutar FL Group í bankanum sé hluti af reglulegu mati félagsins á eignum sem ekki falla undir kjarnafjárfestingar.