Mikil lækkun hlutabréfa

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. mbl.is/Brynjar Gauti

Hluta­bréf lækkuðu mikið í viðskipt­um í Kaup­höll Íslands í dag. Úrvals­vísi­tal­an lækkaði um 3,86% og er 5317 stig. Aðrar nor­ræn­ar OMX vísi­töl­ur lækkuðu enn meira. Þannig lækkaði vísi­tal­an í Hels­inki um 6,64%, Kaup­manna­höfn um 5,13% og Ósló um 4,16%.

Lækk­un­in er sú mesta á ein­um degi í tvö ár eða frá 24. mars árið 2006 þegar vísi­tal­an lækkaði um 4,42%. Úrvals­vísi­tal­an hef­ur ekki verið lægri frá því snemma í ág­úst árið 2006. Frá ára­mót­um hef­ur vísi­tal­an fallið um 15,8%, eða  eitt þúsund stig.

Gengi bréfa SPRON lækkaði um 10,57% og er skráð 6,60 krón­ur. Gengi bréfa Atlantic Petrole­um lækkaði um 7,86%, FL Group lækkaði um 6,15% og er 10,07 krón­ur. Þá lækkaði gengi Ex­ista um 5,77% og er 14,04 krón­ur. Ekk­ert fé­lag hækkaði í dag.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK