Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,79% við upphaf viðskipta í Kauphöll OMX á Íslandi klukkan10 í morgun. Stendur vísitalan í 5.246,20 stigum. Eimskip hefur hækkað um 3,73% og Atlantic Petroleum um 2,44%. Exista hefur lækkað um 3,73%, SPRON um 2,14%, FL Group um 1,97% og Straumur um 1,28%.
Í Ósló hefur vísitalan lækkað um 0,24% og í Stokkhólmi nemur lækkunin 0,35%. Í Kaupmannahöfn hefur vísitalan hækkað um 0,73%, Helsinki um 0,51% og samnorræna vísitalan Nordic 40 hefur hækkað um 0,16%.