Úrvalsvísitalan niður um 5,28%

Verð hlutabréfa er í frjálsu falli í Kauphöll OMX á Íslandi. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 5,28% og stendur í 5.008,60 stigum. Exista hefur lækkað um 10,27% og voru síðustu viðskipti á genginu 11,80. SPRON hefur lækkað um 8,72% og voru síðustu viðskipti á genginu 5,55. Kaupþing er komið niður í 672 og hefur lækkað um 6,28%. FL Group hefur lækkað um 5,71% og stendur í 9,57. Glitnir hefur lækkað um 5,60% og Landsbankinn um 5,14%.

Eitt félag hefur hækkað í kauphöllinni í dag, Eimskip sem hefur hækkað um 1,69%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK