Alþjóðlegi verkfæraframleiðandinn DeWalt hélt nýverið ráðstefnu og sýningu hér á landi þar sem ríflega 350 viðskiptavinum frá Norðurlöndunum var boðið til Íslands.
Til viðbótar var um 50 viðskiptavinum Sindra, umboðsaðila DeWalt á Íslandi, boðið en Ísland varð fyrir valinu þar sem hvergi í heiminum er meira selt af verkfærum DeWalt, miðað við höfðatölu.
Samkvæmt upplýsingum frá Sindra var þetta stærsta ráðstefna á vegum DeWalt fram að þessu. Kynnt var ný vörulína af verkfærum og fylgihlutum sem hefur verið þróuð.