Úrvalsvísitalan lækkar um 1,59%

Árvakur/Ásdís Ásgeirsdóttir

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,59% það sem af er degi. Hlutabréfavísitölur hafa einnig lækkað annars staðar í Norðurlöndum að Ósló undanskilinni. SPRON hefur lækkað um 5,3%, Atlantic Petroleum um 3,6%, Kaupþing um 2,48%, FL Group um 1,67% og Exista um 1,58%. Össur er eina félagið sem hefur hækkað í dag en hækkunin nemur 0,1%.

Í Ósló hefur hlutabréfavísitalan hækkað um 0,8% en í Kaupmannahöfn nemur lækkunin 0,48%. Helsinki 1,06% og Stokkhólmur 0,68%. Samnorræna vísitalan Nordic 40 hefur lækkað um 0,74%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK