Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa lækkað lítillega það sem af er degi. Í Lundúnum hefur FTSE vísitalan lækkað um 0,34%, í Frankfurt nemur lækkun DAX 0,01% og í París hefur CAC vísitalan lækkað um 0,04%. Hlutabréf lækkuðu umtalsvert í Japan í morgun sem og á Wall Street í gærkvöldi.