Tap 365 nam 2.283 milljónum króna á síðasta ári samanborið við 6.943 milljónir króna í tap árið 2006. Í tilkynningu kemur fram að í tapinu er tekið tillit til þeirrar starfsemi sem hefur verið lögð niður en eignarhlutur í Wyndeham var færður niður að fullu að fjárhæð 2.095 milljónir króna.
Í tilkynningu segir að hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) ársins 2007 nam 1162 m.kr. en á árinu 2006 var EBITDA tap 12 m.kr. ef söluhagnaður dreifikerfis upp á 1563 m.kr. er undanskilinn.
Eigið fé minnkar um 1.592 milljónir
Tekjur á árinu 2007 námu 12.381 m.kr. og jukust um 11,6% á milli ára. Eigið fé var 4.545 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 31%. Eigið fé var í árslok 2006 6.137 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið var 32,7%. Eigið fé 365 hefur því dregist saman um 1.592 milljónir króna á árinu 2007. Veltufjárhlutfallið var 0,87 en var í lok árs 2006 0,62. Félagið seldi eignarhlut sinn í Hands Holding á tímabilinu að upphæð 1.620 m.kr. og andvirði þess var notað til að greiða niður lán. Handbært fé í lok árs nam 190 m.kr. og lækkaði um 756 m.kr. frá ársbyrjun.
Stjórnendur 365 áætla að tekjur ársins 2008 verði á bilinu 13,5 til 14 milljarðar og EBITDA verði 1.300 til 1.400 m.kr.
Tap 365 á fjórða ársfjórðungi nam 2.243 milljónum króna og er það svipuð afkoma og á fjórða ársfjórðungi 2006 er tap félagsins nam 2.246 m.kr. eftir skatta. Bókfærður var 33 m.kr. söluhagnaður vegna sölu á hljóðverum félagsins. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 404 m.kr. en var um 25 m.kr. af reglulegum rekstri á fjórða ársfjórðungi 2006.
Hlutafé aukið um 1,5 milljarð að söluvirði
Ari Edwald, forstjóri 365 segir í tilkynningu til Kauphallar OMX: „Rekstrarárangur á árinu 2007 sýnir að félagið er í sókn bæði er varðar tekjuvöxt og afkomu grunneininga sem staðfestir viðsnúning á rekstri félagsins frá fyrra ári. Rekstur fjölmiðlahlutans gekk vel á árinu og skilaði 900 m.kr. í EBITDA sem er einn besti árangur sem náðst hefur í þessari starfsemi á Íslandi. Sala og dreifing í afþreyingahluta rekstursins gekk vel á árinu en hinsvegar var framleiðsluhlutinn ekki að standa undir væntingum.
Í heild er rekstur félagsins þó mjög nærri þeim áætlunum sem kynntar hafa verið. Við viljum gæta varfærni við mat á eignarhlutum félagsins og með því að færa niður eignahlut í Wyndeham Press Group að fullu hefur óvissu verið eytt og gegnsæi félagsins aukið. Á árinu voru stigin mikilvæg skref í að styrkja fjárhagsstöðu félagsins með sölu á eignum og niðurgreiðslu skulda.
Veltufjárhlutfall félagsins er í árslok 0,87 og eiginfjárhlutfall 31%. Stefnt er að því að auka fjárhagslegan styrk félagsins ennfrekar á næstunni með aukningu á hlutafé að söluverði um 1.500 m.kr. en með þeirri ráðstöfun er verið að laga efnahag félagsins að núverandi starfsemi og búa í haginn fyrir áframhaldandi uppbyggingu.“
Afkomutilkynning 365 og ársreikningur