Landsvirkjun gefur út skuldabréf fyrir 6,3 milljarða

Landsvirkjun  gaf út í vikunni tvö skuldabréf, annars vegar að fjárhæð 75 milljónir dala og hins vegar 2000 milljónir jena en samtals svara þessar skuldabréfaútgáfur  til um 6,3 milljarða króna.   Eftir þessar lántökur hefur Landsvirkjun öruggt lausafé út árið 2009 eða í 24 mánuði. 

Lánstíminn á dollaraskuldabréfinu er 10 ár og umsjónaraðili útgáfunnar er þýski bankinn Depfa.  Lánstíminn á jenaskuldabréfinu er 3 ár og umsjónaraðili er japanski bankinn Mizuho International.  Kjörin á þessum útgáfum jafngilda liborvöxtum að viðbættu 15-20 punkta álagi.

Þrátt fyrir þessi óhagstæðu ytri skilyrði hafi Landsvirkjun gefið út skuldabréf á mjög hagstæðum kjörum sem séu langt undir því skuldatryggingarálagi, sem íslenskir aðilar búi nú við á erlendum lánamörkuðum.  Fjármögnun ársins 2008 fari því afar vel af stað.

Heildarfjárþörf fyrirtækisins fyrir árið 2008 er um 600 milljónir dala.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK