Straumur fjárfestingabanki hefur ráðið Gunnar Brundin í stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs í Svíþjóð. Gunnar hefur 15 ára reynslu af norrænum fjármálamarkaði og starfaði áður hjá Kaupþingi, Carnegie og Investor.
Gunnar Brundin tók við starfinu þann 1. febrúar síðastliðinn. Hann var áður forstöðumaður fjárfestingabankaþjónustu Kaupþings í Svíþjóð. Hann hefur MBA gráðu frá University of Massachusetts, Amherst.