Virði eignarhlutar Exista í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo hefur hækkað um rúma fjóra milljarða króna það sem af er árinu. Exista er kjölfestufjárfestir í Sampo með 20% hlutafjár.
Gengi Sampo hefur hækkað um tæp 2% frá ársbyrjun, en með dýfum í síðari hluta janúar og aftur um miðbik febrúar.
Á sveiflutímum snýst tap auðveldlega í gróða og öfugt. Þannig hefur hlutur Exista í breska félaginu JJB Sports hækkað um 149 milljónir króna, en 1,7 milljarða tap er á hlutnum í Storebrand.