Stjórn Teymis hf. hefur samþykkt kaup á 51% hlut í IP fjarskiptum ehf. sem veitir fjarskiptaþjónustu undir vörumerkinu HIVE. Í samningnum felst að dótturfélag Teymis hf., Ódýra símafélagið ehf. (SKO), mun renna inn í IP fjarskipti. Kaupverð hlutanna er trúnaðarmál en áhrif til lækkunar á handbæru fé eru 250 milljónir.
Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins.
Fram kemur á heimasíðu Teymis, að ætlun sameinaðs félags sé að sækja áfram inn á lággjaldamarkaðinn og bjóða neytendum heildarlausnir í fjarskiptum á hagstæðu verði. Áhersla verði lögð á sjálfstæði félagsins og því er ætlað að veita öðrum fjarskiptafyrirtækjum harða samkeppni.
Hermann Jónasson verður forstjóri hins sameinaða félags.