„Alþjóðabankinn tilkynnti nú í morgun um nýja útgáfu krónubréfs til eins árs að nafnvirði 14 milljarða króna og bera bréfin 11,5% vexti. Er þetta önnur útgáfa febrúarmánaðar en áður voru gefnir út 2 milljarðar króna í byrjun mánaðar.
Samtals hafa 8 milljarðar króna fallið á gjalddaga í mánuðinum að viðbættum vöxtum. Útgáfa umfram innlausn í þessum mánuði nemur því 8 milljörðum króna, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.
Í mars falla krónubréf að nafnvirði 27 milljarða króna á gjalddaga og búast má við að töluverðum hluta gjalddaganna verði mætt með nýjum útgáfum enda hefur komið í ljós að á meðan vaxtarmunurinn er jafnmikill og raun ber vitni hefur áhugi fjárfesta á nýjum útgáfum krónubréfa viðhaldist, að því er segir í Morgunkorni.
Til að mynda var stórum gjalddögum í janúar að fullu mætt með nýjum útgáfum. Núna eru útistandandi krónubréf að fjárhæð ríflega 396 ma.kr., sem er svipuð staða og var um mitt síðasta sumar."