Evran aldrei dýrari

Krónan veiktist um 0,15% í dag skv. upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitalan var 131,20 stig þegar viðskipti hófust í dag en hún var 131,45 stig þegar viðskiptum lauk. Velta á millibankamarkaði nam 27,4 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 66,38 kr., pundið kostar nú 131,75 kr. en Evran náði sögulegum hæðum er lokunargildi hennar fór upp í 100,90 kr. sem er það hæsta frá upphafi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK