Krónan styrktist um 0,11% í dag skv. upplýsingum frá Glitni. Gengisvísitalan var 131,45 stig þegar viðskipti hófust í dag en hún var 131,30 stig þegar viðskiptum lauk. Velta á millibankamarkaði nam 33,5 milljörðum kr. Gengi Bandaríkjadals er nú 66,03 kr., pundið kostar nú 131,70 kr. en Evran náði sögulegum hæðum er lokunargildi hennar fór upp í 100,95 kr. sem er það hæsta frá upphafi.