Kreditkortavelta heimila var 26,6% meiri í janúar 2008 en í janúar á
síðasta ári. Debetkortavelta jókst um 0,2% í janúar 2008 frá sama tíma
árið áður. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimila í janúar
2008 um 14,8%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 21,7% í
janúar 2008 frá sama tíma árið áður. Erlend greiðslukortavelta
hérlendis dróst saman um 5,1% í janúar 2008 borið saman við janúar
2007. Þetta kemur fram í nýbirtum hagvísum Hagstofu Íslands.