Verð á áli hefur hækkað um 34% það sem af er þessu ári, að miklu leyti vegna raskana á framleiðslu í Kína og Suður Afríku. Í Kína olli versta vetrarveður í 50 ár rafmagnsleysi sem truflaði álframleiðslu og í Suður Afríku veldur skortur á raforku því að álver fá ekki næga orku til að skila fullum afköstum.
Hækkun álverðs endurspeglar einnig
verðhækkun á aðföngum s.s. raforku, báxíti og súráli. Þá hafa veiking
Bandaríkjadals og slæmar verðbólguhorfur valdið mikilli ásókn fjárfesta
í ýmsar hrávörur, ekki síst málma. Síðast en ekki síst er búist við
mikilli spurn eftir áli í Kína á næstunni vegna truflana á framleiðslu
þar og er jafnvel talið að Kína, stærsti álframleiðandi heims, muni
flytja meira inn en út af áli á þessu ári, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.
„Skoðanir
eru mjög skiptar meðal greiningaraðila um það hvort það háa verð sem nú
er á málmum sé komið til að vera. Sumir telja að ekki sé hægt að
viðhalda verðinu nú þegar samdráttur er yfirvofandi í alþjóðahagkerfinu
á meðan aðrir telja að þörf nýmarkaðsríkja fyrir að byggja upp innviði
sína sé líkleg til að standa undir eftirspurn eftir málmum um komandi
ár.
Fjárfestar
hafa í auknum mæli keypt málma í stað verðbréfa undanfarið vegna
veikingar Bandaríkjadals og versnandi verðbólguhorfa. Hafa góðmálmar
skilað sex til tuttugufalt meiri ávöxtun en bandarísk ríkisskuldabréf á
þessu ári. Þannig náði verð á gulli sögulegu hámarki í London í morgun
samtímis því að dalurinn var í sögulegu lágmarki gagnvart evru. Hefur
gull hækkað í verði um tæp 19% á þessu ári, kopar um 32% og silfur um
tæp 43%," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.