Gengi krónunnar hefur lækkað verulega í morgun eða um 2,6%. Gengisvísitalan var 133,56 stig við lokun markaða í gær en stendur í 136,5 stigum nú. Hæst hefur vísitalan farið í 137,45 stig í dag. Ef gengisvísitalan hækkar þá lækkar gengi krónunnar.
Viðskipti á gjaldeyrismarkaði nema 37 milljörðum króna það sem af er degi. Bandaríkjadalur stendur nú í 67,90 krónum, evran 104,70 krónur og pundið 136,80 krónur.
Raungengi, mælt sem hlutfallsleg þróun verðlags hér á landi samanborið við helstu viðskiptalönd, lækkaði um 2,5% í febrúar frá fyrri mánuði samkvæmt mælingu Seðlabanka Íslands.
Vísitala raungengis er nú 101,3 stig og hefur ekki verið lægri síðan í desember 2006. Raungengi krónunnar fór hækkandi framan af síðasta ári en viðsnúningur varð í júlí þegar lausafjárkrísan byrjaði að hafa áhrif til lækkunar gengis krónunnar á síðari hluta árs, samkvæmt Morgunkorni Glitnis.
„ Síðan í júlí hefur raungengið lækkað um
10,8% en á sama tíma hefur nafngengi krónunnar lækkað um 16%. Lægra
raungengi hefur öllu jafna jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð þar eð
samkeppnisstaða útflutningsgreina og þeirra greina sem eru í samkeppni
við innfluttar vörur batnar ásamt því að dýrari innflutningur ætti að
slá á einkaneyslu. Þannig eykur lækkandi raungengi samkeppnishæfni
þjóðarbúsins í alþjóðlegu tilliti," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.