Verð á gulli í framvirkum samningum komst í 1000 dala únsan á markaði í Lundúnum í dag en verðhækkunin tengist lækkandi gengi Bandaríkjadals gagnvart evru og jeni. Verð á gulli í hefðbundnum viðskiptum fór í 997,65 dali únsan í dag. Hefur gullverð aldrei verið hærra.