Tryggingarálagið á skuldabréf íslensku bankanna heldur áfram að hækka og hefur það aldrei verið hærra en nú. Álagið á 5 ára ríkjandi bréf Kaupþings er nú 775 punktar og hækkaði það um 25 punkta í gær.
Álagið á sams konar bréf Glitnis er 730 punktar en var 15 punktum lægra daginn áður. Mest hækkaði þó álagið á skuldabréf Landsbankans í gær en við lokun markaða var það 585 punktar og hækkaði um 40 punkta í gær.