Aflaverðmæti jókst milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 80 milljörðum króna á árinu 2007 samanborið við 76,2 milljarða á árinu 2006. Aflaverðmæti jókst því um 3,9 milljarða eða 5,1% milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 5 milljörðum en var 5,6 milljarðar í desember 2006.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni var aflaverðmæti botnfisks var 60,3 milljarðar árið 2007 og jókst um 4,8% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 57,5 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 29,5 milljarðar og jókst um 6,8%. Aflaverðmæti ýsu nam 14,5 milljörðum, sem er 27% aukning frá 2006.  Aflaverðmæti karfa dróst saman um 11,3% og var 5,8 milljarðar í árslok. Verðmæti ufsaaflinn var 4,2 milljarðar árið 2007 og dróst saman um 9,5% frá fyrra ári.

Verðmæti flatfiskafla nam 4,3 milljörðum árið 2007 og dróst saman um 17,1% frá árinu 2006. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 15,5% milli ára og nam 14,5 milljörðum. Munar þar mestu um 94,8% aukningu á verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum í árslok 2007. Aflaverðmæti síldar nam 5,7 milljörðum á síðasta ári og dróst saman um 10,2% frá 2006. Verðmæti kolmunna dróst saman um 16,2% og nam 3 milljörðum árið 2007.

Verðmæti rækju var 226 milljónir samanborið við 287 milljónir árið 2006 sem er samdráttur um 21,3%.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 32 milljörðum króna sem er aukning um 3,7 milljarða eða 13,1%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 5,5%, var 12,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 24,9 milljarðar og dróst saman um 3,9% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8,5 milljörðum sem er 6,8% aukning.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK