Gengi krónunnar lækkaði um 6,97% í dag, og er gengissveiflan sú mesta sem menn muna eftir á einum degi. Gengisvísitala krónunnar var 143,60 í morgun en er nú 153,55 stig. Velta á millibankamarkaði var 88,5 milljarðar.
Gengi Bandaríkjadollars var 75,77 krónur í lok viðskiptadags, gengi breska pundsins 151,63 krónur og gengi evru er 119,44 krónur.