Gengi krónunnar hefur lækkað á ný eftir örlitla hækkun í upphafi viðskipta á millibankamarkaði með gjaldeyri. Hefur krónan nú lækkað um 3,88% en í gær lækkaði gengi krónunnar um nærri 7%. Gengisvísitalan er nú skráð 159,38 stig, samkvæmt vef Kaupþings, og hefur aldrei verið hærri.