Heldur dró úr lækkun hlutabréfa undir lok viðskiptadags í Kauphöll Íslands. Um tíma í dag lækkaði Úrvalsvísitalan um rúmlega sex prósent en vísitalan endaði í 4564 stigum, 2,02% lægri en lokagildið var í gær.
Gengi þriggja félaga hækkaði í dag: Eikar banka um 3,88%, Landsbankans um 1,67%, Bakkavarar um 1,31% og Straums-Burðaráss um 0,09%. Bréf FL Group lækkaði um 6,39% og SPRON um 6,05%.