Krónan hefur veikst um 1,57% frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði klukkan 9 í morgun. Stendur gengisvísitalan í 155,85 stigum en var 153,40 við lokun markaða í gær. Gengi Bandaríkjadals er 76,98 krónur, evran er 121,34 krónur og pundið 153,80 krónur, samkvæmt upplýsingum frá Glitni.